Ég hef áður látið gamminn geysa um ágætu könnukaka enda er þetta eitt af því auðveldasta sem þið gerið í eldhúsinu og tilvalið fyrir þá sem eru ekki góðir í bakstri en vilja verða betri.
Hér kemur þemað sterkt inn og er þessi einfalda könnukaka stútfull af dásamlegum lakkrís.
Eigið þið fimm mínútur aflögu? Gerið þá þessa köku!
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Könnukaka með lakkrís
Hráefni
- 3msk hveiti
- 1/4tsk lyftiduft
- 1tsk lakkrísduft frá Johan Bülow
- 1/2bolli mjólk
- 4msk sykur
- 1msk sýrður rjómi
- 1 Nesbú-eggjahvíta
- 1msk olía
Aðferð
- Blandið öllum hráefnunum vel saman í könnu sem þolir örbylgjuofn.
- Skellið könnunni inn í örbylgjuofn í tvær og hálfa til þrjár mínútur.
- Ef þið viljið er mjög gómsætt að hella smá lakkríssírópi frá Johan Bülow ofan og ég skreytti mína með lakkrískúlu frá honum því þær eru stórkostlegar.
The post Könnukaka með lakkrís appeared first on Blaka.is.